top of page
Search

Ár Vatnsins

  • Writer: Fjóla Jensdóttir
    Fjóla Jensdóttir
  • May 23
  • 7 min read

Júní 2026 - Júní 2027


Í mars 2025 færði Satúrnus sig yfir í fiskamerkið þar sem hann hefur verið að senda áhorf yfir á nautið, meyjuna og bogmanninn - og samdráttaráhrif. Satúrnus er í eðli sér merki sem dregur saman og krefst þess af okkur til að skoða dýpra og að sinna stoðum og uppbyggingu frá grunni. Satúrnus skapar skort og samdrátt. Júpiter hins vegar veitir gnægtir, tækifæri og þenslu. Samtenging og samvinna þeirra tveggja skapar eitthvað svo mikið töfrandi og þegar þær ná að vinna saman á sama vettvangi - skapast ekki bara einhvers konar krýsa, skortur eða samdráttur (Satúrnus) heldur líka tækifæri og hjálpræði til að lagfæra veikleika í stoðum og grunnstrúktúrum málana. Júpiter skoðar einlæglega þessa hluti með Satúrnusi en sem pláneta þekkingar, vonar, tækifæra, sannleikans og stuðnings - ljáir hún stoðunum dýpri heilindi. Þær vinna fallega saman og mætast í miðjunni.


Af og til nær Júpiter að blessa Satúrnus, án þess að Satúrnus nái að draga saman Júpiter þensluna - það er að segja Júpiter sendir áhorf á Satúrnus án þess að Satúrnus snerti Júpiter. þessi tímabil verða oftast tímabil mikillar heilunar og leiðréttingar. Eitt slíkt tímabil er að opnast núna og hvernig þetta tímabil mun skapa heilun og leiðréttingu í heiminu og fyrir þig er málefni þessarar greinar.


Síðasta árið rúmlega, frá 28. mars 2025 til 1. júní 2026, hafa verið að virkjast erfið og karmísk áhrif þar sem Satúrnus hefur ferðast í gegnum tvö smástirni á jaðri vatnsmerkja, sem saman eru kölluð „brennandi parið“. Þetta er tími sem oft lýsir sér sem lokun eða þyngsli í ferlum, þar sem hlutir verða óljósir, úrlausnir tefjast og margt sem hefur verið undir yfirborðinu kemur upp á yfirborðið í sálrænu eða tilfinningalegu formi.


Fiskurinn, sem þetta tengist að hluta, er abstrakt og óefnislegt eða ótjáð merki og hefur tilhneigingu til að magna upp dulin, ómeðvituð eða flókin mynstur sem erfitt er að setja í skýra mynd. Þegar Júpiter fer síðan að hafa áhrif á þetta svæði, opnast jafnan möguleiki á innsýn, lausnum og nýrri stefnu — eins konar endurskipulagning þar sem það sem var fast eða falið getur farið að hreyfast aftur og fá skýrari farveg. Þegar Júpiter sendir þessi áhorf á Satúrnus fer að hann að hefja heilun á þessum földu og óljósu vandamálum sem hafa verið án lausna, sannleika eða stefnu. Vettvangur þessarar heilunar mun þá tengjast vettvangi fisksins í kortinu þínu - og við skoðum það í lokinn - en byggist að sjálfsögðu á vedíska dýrahringnum og vedíska rísanda merkinu þínu.


Pushan - Verndari dýra og sakleysingja


Fyrsta júní 2026 - lendir Júpiter í krabbamerkinu og sendir þá beint áhorf á öll vatnsmerkin - hann opnar hér fyrir lendingu og vernd fyrir næringu á marga vísu. Vatnsmerkin eru merki kvengyðjunnar, næringar, flæði og hreinsunar. Vatnmerkin tengjast listamönnum, listamannakúltúr, mistík, næmni, kærleiknum, næringu og móðurorkunni. En innan vatnsmerkjana sitja smástirni sem ennfremur tengjast meiri sérhæfingu á þessari næringu og hreinsun. Á milli vatnsmerkjana þriggja - krabba, sporðdreka og fisks sitja 9 smástirni - tvö þeirra eiga sér sérstakt samband sín á milli, m.a. í gegnum guðinn Pushya. Pushya er guðsmynd sem tengist sérstaklega vernd, aðhlynningu, siðferði, samfélagslegri ábyrgð, dýrum og sakleysingjum. Pushya er 9 smástirni dýrahringsins og tengist visku, handleiðslu og vernd, ber tákn kúaspenans og snýr fyrst og fremst að andlegri gnægt og rækt hennar. Revati er síðasta smástirnið - og er undir ráðum Pushan, sem lýtur einnig að vernd (sérstaklega á ferðum eða í transit), samfélagslegri ábyrgð, kærleik, innsæi og listum. Pushan var verndari dýra og manna á ferðalögum og er gjarnan beðið til þegar fólk kallar eftir vernd hjarða eða fólks á ferðalögum. Saman tengjast þær ekki bara næringu heldur vernd í kringum vatn, afkomu og hvers kyns næringu. Síðast árið 1975 í septembermánuði lenti Júpiter í Revati fiskamerkinu og Satúrnus var þá að verma Pushya í krabbanum - Nokkuð svipað en víxlun á stöðunni sem er að myndast nú í júni - Þar sem Júpiter situr í Pushya og Satúrnus í Revati. Á þessum tíma - veturinn 1975/1976 var tímabil mikillar endurskoðunar og vakningar í tenglsum við næringu, bæði af andlegri og líkamlegri. Þarna var mikil vakning í vernd dýra og útgáfa Peter Singer af bókinni Animal liberation framkallaði nýjar pælingar í siðferði. Bókin kynnti hugtakið „speciesism“ (tegundamisrétti), sem Singer skilgreinir sem hugmyndina að mannverur séu æðri öðrum tegundum og að réttindi manna vegi meira en réttindi dýra. Hún beitir nytjasiðfræði (utilitarianism) til að rökstyðja að við ættum að taka tillit til hagsmuna dýra og forðast að valda þeim óþarfa þjáningu. Á þessum tíma er líka mikil vinna á alheimsvettvangi sett í að vernda viðkvæm vistkerfi eftir matarkrýsuna sem herjaði á heiminn á tímabilnum frá 1972-1975. Sameinuðu þjóðirnar efldu alþjóðlega samhæfingu á sviði matar og landbúnaðar. Mikil umræða átti sér stað um réttláta matardreifingu í heiminum. Einnig mikil uppbygging í landbúnaðarþróun. Áhugi opnaðist á viðkvæmum hópum og samfélögum sem verst urðu úti á matarkrýsunni. Í desember 1975 var IFAD (nternational Fund for Agricultural Development) stofnað, sem beint viðbragð við krýsunni og ætlað að taka meiri mið af fátækt í dreifbýli, og sjálfbærni í matvælaframleiðslu.


Þó að núverandi kreppur og pólitískar flækjur, þar sem sumir leiðtogar, eins og Trump, hafi viljandi skapað skort og sett hömlur á dýraverndunarsamtök, regluverk og alþjóðlega samvinnu, hafi raskað jafnvægi, opnast nú tímabil heilunar og samvinnu sem getur hjálpað til við að leiðrétta mál, endurheimta flæði auðlinda og færa þau í betri farveg um allan heim.


💧 Vatnið – ert þú vökvaður?


Vatnsorka dýrahringsins endurspeglar ávallt aðgengi að næringu yfirhöfuð. Vatnsmerkin þrjú tengjast ekki aðeins vatnsbúskap jarðarinnar – móður okkar – heldur einnig okkar eigin aðgengi að vatni, næringu og tilfinningalegri endurnýjun.


Vatnsmerkin þrjú fjalla um þessa næringu á mismunandi máta:

Krabbinn tengist tilfinningalegri næringu, öryggi og tengslum.

Sporðdrekinn fjallar um sálræna, djúpa og kynferðislega næringu — umbreytingu og losun.

Fiskarnir tengjast næringu í gegnum hvíld, upplausn, afsögn og innsæi.


Þessi næring í heild sinni styrkist þegar Júpíter finnur sér loks leið inn í vatnsmerkin. Þá opnast flæði sem hefur annaðhvort verið stöðvað eða ójafnvægi í, og kerfið fær aftur tækifæri til að drekka í sig það sem það raunverulega þarfnast.


Ef þú ert með þessi merki í rísandi merki eða tungli, og/eða margar plánetur í vatnsmerkjum, muntu finna sérstaklega sterkt fyrir þessari breytingu þegar Júpiter fer inn í krabbann 1. júní.


Spár fyrir hvert merki


Þegar Júpiter fer í gegnum dýrahringinn er hann ekki bara að færa ytri atburði eða tækifæri — hann er að opna næringu fyrir hvert merki - á ólíkum vettvöngum. Undirliggjandi í öllu þessu liggur eitt central þema: hvernig vatnsmerkin í þínu korti fá að anda, hreinsast og vaxa. Vatnsmerkin — krabbinn, sporðdrekinn og fiskarnir — eru þau svæði þar sem við finnum fyrir lífinu á dýpsta hátt. Þar geymist minnið, tilfinningarnar, innsæið og tengingin við eitthvað sem er stærra en einstaklingurinn sjálfur.

Þegar Júpiter fer í gegnum dýrahringinn virkir hann mismunandi leiðir að vatnsrásum næringar — og hvert merki fær sína eigin gjöf.


Hrútur rísandi

Innri rætur sem halda þér stöðugum jafnvel þegar allt annað hreyfist.


Júpíter í Krabba virkjar 4. húsið og beinir athyglinni að rótum, heimili og innri stöðugleika. Þetta er tímabil þar sem grunnur lífsins verður aðal vaxtarsvæði.

Vatnið kemur fram sem hæg og djúp endurbygging á tilfinningalegu öryggi. Gamlar rætur annaðhvort styrkjast eða losna.

Niðurstaðan er meiri innri ró þar sem þú þarft ekki að ýta áfram til að finna stöðugleika.



Naut rísandi

Samskipta og networking þensla og umbætur


Júpíter í Krabba virkjar 3. húsið og dýpkar samskipti, hugsun og daglegt flæði orða. Hugsanir fá tilfinningalegan lit í stað þess að vera einungis rökréttar.

Vatnið ferðast í gegnum samtöl og tengsl og gerir þau mýkri og næmari. Orð verða tenging í stað upplýsingaskipta.

Niðurstaðan er skýrari rödd sem byggir á innsæi frekar en hraða.


Tvíburi rísandi

Vaxandi næmni fyrir eigin verðmætum


Júpiter blessar og styrkir sjálfsvirði, öryggi og tilfinningalegan stöðugleika. Þessi tími mun breyta og lækna sjálfsmynd og sjálfsvirði - sem skilar sér einnig í sterkara tekjuflæði og eignastöðu.

Vatnið vinnur í gegnum djúp undirliggjandi tengsli þín við þig sjálfa/n og mýkir tengsli við efnislega streitu.

Niðurstaðan er sterkara sjálfsvirði sem ristir á innri öryggi.


Krabbi rísandi

Endurnýjun og heilun Sjálfsins - í líkama og sál


Júpíter í Krabba virkjar 1. húsið og stækkar sjálfsmynd, líkama og nærveru. Þetta er beinn vaxtarpunktur persónulegrar endurnýjunar.

Vatnið verður mjög lifandi og næmt í eigin líkama og tilfinningum. Allt fer í gegnum aukið viðkvæmnis- og styrkleikajafnvægi.

Niðurstaðan er ný útgáfa af sjálfum þér sem er bæði sterkari og mýkri.


Ljón rísandi

Hvíld, og losun skulda leiðir til aukins frelsi


Þessi tíma mun dýpka hvíld, losun og hvers kyns afsölu. Hjá ljóninu er þenslan ekki mjög sýnileg, en lýtur að því að heila og hreinsa allt sem í felum situr.

Vatnið leysir upp það sem hefur verið ósagt eða óunnið. Kyrrð og hvíld verður að aðal verkfæri breytingar.

Niðurstaðan er meiri innri friður sem kemur úr losun, ekki átaki.


Meyja rísandi

Félagsleg heilun og stækkun eða "leiðrétting" á vinahóp


Júpíter í Krabba virkjar 11. húsið og eflir vini, net og framtíðarsýn. Tengsl verða mikilvæg leið til vaxtar.

Vatnið flæðir í gegnum samfélag og sameiginlega drauma. Tilfinningaleg tenging við hópa styrkist.

Niðurstaðan er skýrari stefna sem byggir á réttu fólki í kringum þig.


Vog rísandi


Júpíter í Krabba virkjar 10. húsið og eflir feril, stefnu og sýnileika. Þetta er opinber vaxtarfasinn.

Vatnið blandast inn í ábyrgð og atvinnulíf og gefur því tilfinningalega dýpt. Starf þarf að meika innri merkingu.

Niðurstaðan er skýrari átt í lífinu sem er ekki bara ytri árangur.


Sporðdreki rísandi


Júpíter í Krabba virkjar 9. húsið og stækkar heimsmynd, nám og ferðalög. Þetta er útvíkkun á skilningi.

Vatnið fer í gegnum trú, merkingu og innsæi. Sannleikur verður tilfinningalegur frekar en fræðilegur.

Niðurstaðan er víðari heimsmynd sem þú finnur í líkamanum, ekki bara huganum.


Bogmaður rísandi


Júpíter í Krabba virkjar 8. húsið og dýpkar sameiginleg fjármál og umbreytingu. Þetta er svið trausts og losunar.

Vatnið fer í gegnum nánd og tilfinningalega hreinsun. Gamlar bindingar geta mildast eða brotnað upp.

Niðurstaðan er dýpri tilfinningatengsl og meiri innri hreinsun.


Steingeit rísandi

Hjálpræði í málamiðlun, lækning í samböndum og tengslum


Sambönd eflast núna mikið og alls kyns samstarf. Spegillinn í öðrum verður virkur. Vatnið flæðir á milli þín og annarra og krefst mýktar í tengslum. Nánd verður lykilþema.

Niðurstaðan er meiri jafnvægi í samböndum sem byggir á tilfinningalegri hreinskilni.


Vatnsberi – 6. hús

Júpíter í Krabba virkjar 6. húsið og eflir vinnu, heilsu og daglega rútínu. Þetta er kerfisbundin uppbygging.

Vatnið fer í gegnum daglegt líf og gerir það næmara. Líkaminn verður hluti af innsæi.

Niðurstaðan er betra jafnvægi milli vinnu og innri líðanar.


Fiskar – 5. hús

Júpíter í Krabba virkjar 5. húsið og eflir sköpun, ást og gleði. Þetta er tjáning innri orku.

Vatnið flæðir frjálslega í gegnum tilfinningalega tjáningu. Gleði verður djúp frekar en yfirborðsleg.

Niðurstaðan er meiri lífskraftur í sköpun og ást.

 
 
 

Comments


bottom of page