Gjöfin hans Júpiter
- Fjóla Jensdóttir
- Mar 7
- 2 min read
Hvar lendir júpiter gjöfin mín?

Júpiter er plánetan hans Guðs. Júpiter er pláneta sem allir góðir stjörnuspekingar kryfja vel með hverjum kúnna sem ratar til hans því Júpiter táknar uppskeruna okkar í kortinu okkar. Hún táknar ekki bara blessanir í formi tekna og fjárhagslegs öryggis, heldur sannar blessanir á borð við hamingjuna, viskuna, trúna, vonina og kærleikans eða örlætið sem er vissulega tær og skýr birtingarmynd kærleikans. Júpiter er pláneta sem stuðlar að flæði blessana og vonar. Hún er pláneta náttúrunnar, barnsins, dýranna og sannleikans. Hún táknar gyllta litinn, englana og handleiðsluna. Júpiter er pláneta sem ljáir barnalán í korti og ástina og tengingu við dýrin. Þess vegna veit maður líka alltaf að þeir sem elska dýrin, eru þeir sem búa yfir viskunni og dýpri tengingu við skynsemina, heiðarleikann og sannleikann.
Í mars mánuði, nánar tiltekið á tíunda þessa mánaðar, á sér stað svokölluð station hjá Júpiter - þetta er þegar hann (frá sjónarmiði okkar á jörðinni) stoppar og snýr sér. Þegar þetta fyrirbæri á sér stað þá þjappast orkan hans saman og verður kröftugri og máttugri og í þetta skiptið - er hann að snúa sér til að rétta sig af og hefja framgöngu aftur eftir tæplega 4 mánuði í retrogír. Hann er að klára ferð sína um tvíburamerkið skv. Sidereal dýrahringnum, þar sem örvarsmástirnið situr, smástirni sem táknar endurheimtu, heilun, lækningu, heimferð og endurhæfingu. Hvers konar heimferð, endurhæfing eða lækning veltur á þínu persónulega stjörnukorti en það er óhætt að segja að öflug “heimkoma” er að eiga sér stað í mars mánuði. Júpiter orkan núna er mjög sterk og öflug og dagana í kringum 10unda mars eru dagar þar sem þú munt finna hvernig þú dregur örina til baka og stefnan verður skýrari. Næstu mánuðir varða svo markvissa ytri uppbygging þar sem “skoðunarferlinu” er lokið og uppbygging út frá nýjum tækifærum eða hugmyndum (tvíburinn er merki hugmynda og frjósemi).
Fyrir hrútinn verður þessi þensla á vettvangi samskipta og verslunar.
Fyrir nautið verður þetta á sviði fjármála, matarræðis og tjáningar.
Fyrir tvíburann verður þetta á sviði persónulegrar endurheimtu á líkama og sál.
Fyrir krabbann er þetta félagsleg endurhæfing og endurkoma góðs vinar.
Fyrir ljónið er þetta félagsleg endurhæfing og endurkoma góðs vinar.
Fyrir meyjuna sýnir þetta sig á vettvangi atvinnu í formi umfjöllunar, þenslu og stöðuhækkunar.
Fyrir vogina verður þetta mestmegnis tengt breikkunar að heimsmynd í gegnum menntun eða ferðalög.
Fyrir sporðdrekann er þetta fjárhagslegar blessanir í formi arfs, trygging, arðs, eða styrkja.
Fyrir bogmanninn er þetta blessanir og heilun í samböndum og mögulega maki endurheimtur eða heilun/lækning í tengingunni við maka.
Fyrir steingeitina er þetta þensla á atvinnu sviði og bætt rútína heilsa og atvinnuumhverfi.
Fyrir vatnsberann er þetta barnalán, rómantískar gnægtir og djúp von og frjósemis hugsun.
Fyrir fiskinn er þetta endurheimt andleg heilsa, stækkun eða lagfæring á húsnæði eða tækifæri til húsnæðiskaupa.
Veist þú þitt rísanda merki??
Sendu mér PM á vefsíðunni og við leiðréttum það. Undir myndinni minni er hnappur beint á email.




Comments