top of page
Search

Sumarið 2026

  • Writer: Fjóla Jensdóttir
    Fjóla Jensdóttir
  • Mar 23
  • 4 min read

Hvað ber sumarið í skauti sér fyrir merkin tólf?


Þegar við lítum til hækkandi sólar og hlýrri daga, vaknar í okkur gleði yfir komandi sumri 2026. Það er því tilvalið að skoða þær fallegu stjarnfræðilegu breytingar sem bíða okkar á þessum árstíma. Í gegnum merkin 12 og smástirnin 27 verða samsetningar nýjar og ólíkar sögur vakna til lífsins, bæði í innra og ytra lífi okkar. Stærsta breytingin verður um miðjan júní, þegar Júpíter færist frá tvíburum yfir í krabbamerkið, þar sem hann nær miklum styrk og færir með sér aukna blessun, vexti og mildi - fyrir okkur öll.


Í krabbanum nær Júpiter hinn góði miklum styrk og er oftast því fær um að ljá enn meiri blessanir, þenslu og mildi en á öðrum stöðum.


Fyrir vatnsmerkin þrjú (krabba, sporðdreka og fisk) er þetta sérstaklega áberandi og mun sýna sig í vaxandi heppni, stuðningi, meðbyr, heilsu og handleiðslu.

Fyrir jarðarmerkin þrjú (naut, meyju og steingeit) táknar þetta félagslegar og rómantískar blessanir.

Fyrir loftmerkin þrjú (tvíbura, vog og vatnsbera) táknar þetta fjárhagslegar, atvinnutengdar og efnislegar blessanir.

Fyrir eldmerkin þrjú (hrút, ljón og bogmann) táknar þetta heilun, hreinsun og afsölu þyngsla og fjötra. Þessar nýju blessanir vara í heilt ár á meðan Júpiter ferðast í gegnum krabba til næsta júní 2027.


Síðasta árið hefur verið sérstakt og krefjandi í tengslum við stöðu Satúrnus í fiskinum. Síðan í lok mars 2025 hefur Satúrnus verið án áhorfs eða verndar frá Júpíter í þessu merki, og þar að auki staðsettur í þyngsta smástirni fiskanna, Purvabhadradpada. Þessi staða hefur kallað fram erfitt karma, stöðnun og krefjandi verkefni sem krefjast þrautseigju, ábyrgðar og innri styrks. Orkan hefur verið þung og verkefnin virðast stundum óyfirstíganleg, þar sem Satúrnus hefur unnið að því að móta og styrkja stoðir í lífi okkar án þess að fá auðveldan stuðning eða mildun frá stórum vexti Júpíters.

Nú heldur þessi þróun áfram, en á nýjan hátt. Þegar Júpíter færir sig í krabbamerkið um miðjan júní 2026, færir hann loksins með sér þenslu, vernd og stuðning yfir þessi satúrnusarverkefni. Þetta þýðir að þau verkefni sem hafa verið erfið, þung og krefjandi síðasta árið geta nú þróast á jákvæðan hátt. Stoðirnar sem Satúrnus hefur unnið að í fisknum eru nú studdar af orku Júpiters, sem leiðir til aukins mildi, þenslu og möguleika til vaxtar, bæði innra með okkur og í ytra lífi.

Með öðrum orðum: síðasta ár hefur kynnt til leiks nýjar leiðir en ekki alltaf möguleikann til að stíga inní þær fyllilega. Í sumar opnast tækifæri til að sjá þessar nýju leiðir vakna til lífsins, styrkjast og/eða blómstra. Með blessun Júpiters sem léttir byrðar og styður við frekari þróun, verður sumarið er tímabil þar sem þrautir víkja fyrir stuðningi og tækifærum, og þyngsli breytast í vöxt og möguleika.



Áhrifin ítarlega fyrir öll 12 merki:


Hrútur rísandi


Síðasta árið hefur verið þungur varðandi svefn, orku og dagleg óvænt útgjöld og kostnaðarliði. Nú, með Júpiters blessun, má eiga von á lausnum: betri svefnvenjur, innri ró og tækifæri til að endurskipuleggja fjármál og takmarkanir sem hafa hindrað þig.


Naut rísandi


Síðasta árið hefur aukið við ábyrgð eða þyngsli í vinahópum, félagslegum tengslum og framtíðarmarkmiðum. Nú umbreytast þyngsli yfir í tækifæri: stuðningur frá vinum, nýjar tengingar og ný tækifæri í hópverkefnum eða samtökum.


Tvíburi rísandi


Satúrnus í Tíunda hefur síðasta árið kallað fram krefjandi verkefni í starfi og opinberum skyldum. Júpíter nú gefur aðgang að auknum möguleikum, viðurkenningu og starfslegum framförum.


Krabbi rísandi


Síðan í mars 2025 hefurðu þurft að standa sterk og takast á við þrautseigju og erfið verkefni í tengslum við menntun, kennara, ferðalögum og trú. Nú opnast möguleikar til dýpri skilnings, betri kennarar, skýrari lærdómur og ferðalög til sjós.


Ljón rísandi


Fyrir ljónið hefur þetta verið sérstaklega erfitt þar sem þessar þrengingar síðusta árið hefur verið á sviði fjármála og sálarlífs. Bjarta fallega ljónið á nú von á létti í fjármálum, sameiginlegum sjóðum og eignum og sálarlegu frelsi. Júpiters blessun nú leiðir til lausna, aukins andlegs sálarfrelsis og tækifæra til að hreinsa fjötra eða skuldbindingar.


Meyja rísandi


Satúrnus í sjöunda hefur verið þungur síðasta árið varðandi nána tengslamyndun, hvers kyns samstarf og sambönd. Nú opnast möguleikar til bættra tengsla, meiri samvinnu og lausna á vandamálum í nánum samskiptum.


Vog rísandi


Satúrnus í Sjöttu hefur síðasta árið kallað fram áskoranir í heilbrigði, daglegu starfi og vinnuumhverfi. Með Júpíters stuðningi má búast við auðveldara daglega lífi, betri vinnuorku og aukinni vellíðan.


Sporðdreki rísandi


Satúrnus í Fimmta hefur leitt til takmarkana í sköpun, börnum og persónulegri tjáningu. Nú opnast tækifæri til nýrra sköpunarverkefna, gleði í áhugamálum og betri tengsla við börn eða samstarfsfólk í sköpun.


Bogmaður rísandi


Satúrnus í Fjórða hefur skapað þyngsli í heimili, fjölskyldu og innra jafnvægi. Nú verður innra jafnvægi og stuðningur styrkt, og erfið verkefni tengd fjölskyldu og heimili fá mildun.


Steingeit rísandi


Satúrnus í Þriðja hefur verið krefjandi í samskiptum, námi og nálgun við upplýsingar. Með Júpíters blessun verður samskiptum létt, lærdómur auðveldari og möguleikar á árangri í námi og daglegum samskiptum auknir.


Vatnsberi rísandi


Satúrnus í Annað hefur kallað fram takmarkanir í fjármálum og persónulegum auðlindum. Nú verður aukin þensla og stuðningur, tækifæri til betri efnahagslegrar stöðu og sjálfsöryggis.


Fiskur rísandi


Satúrnus í Fyrsta hefur verið krefjandi varðandi persónulegan vöxt og sjálfsmynd. Nú verður orkan léttari, sjálfsmynd styrkt og ný tækifæri til að sýna hæfileika, innsæi og innri styrk opnast.

 
 
 

Comments


bottom of page