top of page
Search

Af hverju líður mér svona? Satúrnus Neptúnusar áhrifin í hápunkti í febrúar 2026

  • Writer: Fjóla Jensdóttir
    Fjóla Jensdóttir
  • Feb 21
  • 5 min read

Í dag, í gær, öll síðasta vika og þessi vika er fyrir marga erfið. Pláneta sem táknar strúktúrinn okkar, öryggið okkar og hvaðeina það sem styður okkur og styrkir dag frá degi situr nú undir drukknun frá risanum Neptúnus sem drekkir getu hennar til að styðja við okkur og þann stöðugleika sem við treystum á dag frá degi. Þessi áhrif hafið þið kannski séð hér og þar á netinu sem Satúrnus Neptúnus tenging og frá einhverjum stjörnuspekingum fjalla þeir um hana í hrútsmerkinu, sem er kolröng staðsetning og þá væntanlega byggð á hinum kolranga vestræna dýrahring - sem kallast “tropical” dýrahringurinn. Hlutverk þessa skrifa minna í dag er ekki til að hefja einhvern áróður gagnvart þessum stjörnuspeki rangfærslum, sem í fullum heiðarleika pirra mig bara ekkert, ég leyfi fólki að vera þar sem það vill vera. Hins vegar ætla ég að tala um raunstaðsetningu þessarar tengingar, sem er í fisknum, nánar tiltekið í Uttarabhadrapada smástirninu innan fisksins. Uttarabhadrapada er smástirni djúpana og táknar þekkingu sem fæst aðeins í gegnum djúpa krufningu, visku og miklar kannanir. Þetta var aðalsmástirni eðlisfræðingsins Albert Einstein.


Þessi erfiða en áhugaverða tenging á sér bæði ytri og innri birtingarmynd. Innri birtingarmyndin er andleg vanlíðan (destabilisation) af ýmsum toga. Þetta getur verið kvíði, eða mögulega aukinn athyglisbrestur. Það veltur allt á birtingarmynd þessarar tengingar í tengslum við þitt persónulega stjörnukort. Ef þú hefur svokallaðar “hugarplánetur” í fisknum - eins og Tunglið (dýpri hugur/innsæi) eða Merkúr (rökhugsun) - sem gera þig þá einstaklega mjúkan og frjósaman einstakling sem á djúpt samband við dagdrauma, innblástur, töfra, samkennd og ljúfleika - þá muntu finna fyrir innri birtingarmyndinni á mun kröftugri máta. Ef þú hins vegar plánetur sem í eðli sér tákna ytri gildi lífs okkar í eðli sér, eins og Mars, Sól, eða Satúrnus á þessum stað í þínu stjörnukorti, verður ytri birtingarmynd þessa transit áhrif mun meiri. Þá sjáum við upplausn stoða í kringum atvinnulíf, yfirmann, heilsu, stjórnsýslu (skattinn) o.s.frv. Hvernig sem þetta lendir á þér, þá máttu vera viss um að þú ert að sjá einhverja upplausn í lífi þínu þessa dagana. Neptúnus er í vanlíðan í djúpri tengingu við Satúrnus og Satúrnus er í vanlíðan í djúpri tengingu við Neptúnus. Þetta þýðir einfaldlega það að þær eru báðar að sýna sínu verstu hliðar. Satúrnus missir getu sýna til að ljá okkur verkfæri eða viðhalda stoðum, en Neptúnus hættir að vera skaðlaus hugsjónsamur draumaóra listamaður, og í staðinn verður hann orsakavaldur að svikum, misskilningum, vatnsskemmdum, feluleikjum og trúnarðarbrestum. Þetta er sem betur fer, bara 2-3 vikna áhrif, og því er mikilvægt að hafa í huga að þetta eru skammvinn áhrif með takmarkandi getu til að valda varanlegum skaða.


Ég veit það er erfitt að fá svona “leiðinlegar” fréttir frá stjörnsupekingum en ástæðan fyrir skrifunum er svo þið hafið hugmynd um af hverju upplausnin er að eiga sér stað og hvað kemur í staðinn. Hugmyndin var að létta áhyggjur og rétta ykkur hjálparhönd í formi dýpri skilnings á þessum tíma. Eftirfarandi er lauslegur listi sem sýnir grunninn í áhrifunum, en ef þið viljið skoða þetta í meiri nákvæmni þá skulið þið panta tíma hjá mér á vefsíðunni: www.fjolavedicastrologer.com


Gróflega séð eru áhrifin þessi:

Hjá Hrútnum: Útgjöld eða óvæntir kostnaðarliðir sem eru tengdir misskilningi eða svikum og/eða svik sem þú sérð illa. Andlega upplifirðu erfiða tengingar við æðri sviðin sem túlka sem kostnaðarsama vígslu. Það sem eftir situr verður ný tenging við flæði, andans orku og dýpri tengsli við æðri sviðin.

Hjá Nautinu: er þetta vinskapur sem er núna í upplausn eða svikum. Upplausn sem mun varpa ljósi á dýpri hluti og leyfa þér að byggja upp vinskap við vini sem koma til með að vera nánari og tryggari vinir en það sem þú hefur áður kynnst.

Hjá Tvíburanum: Þrot í vinsældum/viðurkenningu en niðurbrot í atvinnuleið eða svik yfirmanns. Það sem eftir situr eftir febrúarmánuð verður ný vegferð sem er ástríðufullt viðfangsefni af hjartans ástríðu, dharmískt hlutskipti og ný atvinnuleið sem höfðar margfalt meira til þín en það sem er að fara núna.

Hjá Krabbanum: sýnir þetta sig í tengslum við stuðning, heimsmynd eða lögsókn. Hlutskipti þitt er óljóst á þessum tíma og þú gætir farið í gegnum trúarlega krísu, eða jafnvel skipt um kennara og menntabraut. Níunda húsið - innri birtingarmynd er trúin - en sú ytri eru óáreiðanlegir/óskýrir kennara eða menntastofnun, eða lögsóknir.

Hjá Ljóninu: er þetta svik eða vandamál með conduct kúnna, maka og viðskiptafélaga. Þú gætir verið að basla við heiðarleika í tjáningu, mörkum og gildum hvað varðar peninga og sjóði.

Hjá Meyjunni: eru þetta heilindi í samböndum og geta til að ná að málamiðla og finna sátt og jafnvægi í að gefa og þyggja. Þér gætu liðið sem stoðirnar í samböndunum þínum sé byggðar á brauðfótum undir þessum áhrifum en mundu að Satúrnus hér í sjöunda er að kenna þér að málamiðla og taktu engar fljótfærnisákvarðanir undir þessum áhrifum.

Hjá Voginni: Þú getur upplifað togstreitu og óvissu í daglegu starfi, heilsu og skyldum. Svik, misskilningur eða óljós skilaboð geta kallað fram erfiðleika í samskiptum við yfirmenn, samstarfsfólk eða jafnvel heilbrigðisstarfsfólk. Það sem eftir situr er dýpri innsýn í hvernig á að finna jafnvægi milli ábyrgðar og innri friðar, og hvernig þú getur byggt upp heilbrigð daglegt starf sem styður bæði líkamlega og andlega vellíðan.

Hjá Sporðdrekanum: Áhrifin birtast í ástríðu, sköpun, börnum eða rómantískum samböndum. Misskilningar eða höft geta truflað sköpunargleði eða tilfinningalega tjáningu. Eftir þetta tímabil opnast nýjar leiðir til að láta ástríðu og sköpun fá raunverulegt rými, og verkefni eða sambönd verða hjartnæmari og dýpri.

Hjá Bogmanninum: Áhrifin koma fram í heimili, fjölskyldu og innri öryggiskennd. Misvísandi boð eða svik innan fjölskyldu geta kallað fram breytingar eða nauðsyn til að endurskoða tengsl eða heila gömul sár. Eftir þessi áhrif verður til nýtt jafnvægi í heimilis- og fjölskyldumálum, og innri styrkur vex með dýpri tengingu við uppruna, rætur og tilfinningalegt öryggi.

Hjá Steingeitinni: Þetta snertir samskipti, systkin og nálæg samfélag. Svik eða misskilningur í daglegum samskiptum (sérstaklega við nágranna) getur leitt til að þú lærir að setja mörk og tjá þig skýrar. Það sem eftir situr er aukin hæfni til að skapa traust í samskiptum, dýpri innsýn í hvaða tengsl eru raunverulega styrkjandi og hvernig orð og aðgerðir hafa áhrif á umhverfi þitt.

Hjá Vatnsberanum: Hér birtast áhrifin í tengslum við fjárhagsmál, eigur og gildi. Svik, óvæntur kostnaður eða misskilningur í fjármálum. Eftir tímabilið getur þú endurmetið hvað er virkilega sönnust verðmætni fyrir þig, lært að verja auðlindir og byggt upp fjárhagslegt öryggi sem samræmist gildum og framtíðarsýn.

Hjá Fiskunum: Þetta snertir sjálfið, persónuleika og heilsu. Óvissa í tengslum við þig sjálfa/n eða sjálfsmynd getur kallað fram djúpa innri breytingar. Það sem eftir situr er meiri innsýn, aukinn andlegur styrkur og færni til að samræma innri drauma, ábyrgð og raunverulegt líf þannig að þú ferð út í heiminn með styrk og innsæi.


Gangi ykkur vel elsku vinir. Verið í bandi ef þörf er á

 
 
 

Comments


bottom of page