top of page
This course can no longer be booked.

Verkfærakista Stjörnuspekingsins

Grunnnámskeið í túlkun og spá í gegnum vedísku stjörnuspekina

Ended
3 750 svenska kronor
Location 1

Service Description

Kynntu þér Verkfærakistu Vedíska Stjörnuspekingsins — hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja dýpka skilning sinn á Jyotish stjörnuspeki og læra að túlka eigið stjörnukort á skýran og markvissan hátt. Námskeiðið byggir á áralangri reynslu minni og leggur áherslu á einföld og öflug verkfæri sem þú getur strax nýtt í eigin greiningu. Þú lærir að skilja hvernig himintunglin endurspegla lífsferil þinn — verkefni, áskoranir, gjafir og tækifæri. Markmiðið er að þú farir frá náminu með dýpri innsýn, hagnýta færni og sterkari tengingu við eigið innra flæði. Grunnurinn sem við förum yfir, byggður á hugtakavinnu, á bæði íslensku og sanskrít, gefa þér verkfæri til að halda áfram í frekara nám og dýpka skilning þinn á fræðunum. Flestar nútíma bækur um fræðin innihalda mikið af sanskrít og því mikilvægt að hafa þar sterkan grunn. Í Jyotish er litið svo á að djúpt nám og íhugun á þessum fornu fræðum geti leitt til aukins innri skýrleika, jafnvægis og umbreytandi innsæis. Námskeiðið er skipulagt í fimm lotur, þar sem við förum yfir mismunandi lykilþætti vedískrar stjörnuspeki. Tímasetningar eru ekki enn endanlega ákveðnar, en námskeiðið hefst í lok maí og spannar um það bil tvo mánuði. Á yfirlitsmyndum má sjá innihald hvers tíma. Það er þó mögulegt að umfjöllunarefni 2. og 3. tíma teygi sig yfir í 4. og 5. tíma eftir framvindu hópsins. Þar sem þetta er frumraun námskeiðsins verður ákveðinn sveigjanleiki hafður að leiðarljósi. Athugið: Námskeiðið hefst þegar 12 þátttakendur hafa skráð sig. Verð og valkostir: 49.000 kr. – námskeiðið eitt og sér


Contact Details

  • 500 Terry Francine Street, 6th Floor, San Francisco, CA 94158

    fjolavedicastrologer@gmail.com


bottom of page